If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



 
Monday, July 17, 2006
Nýtt blogg....

Jæja ég ætla að reyna að koma með eitthvað nýtt blogg..... farið á

 gudnyjons.bloggar.is


Posted at 12:20 am by Gudda
Tjáðu Þig.  

 
Sunday, April 16, 2006
Mig langar að eignast kærustu sem allra allra fyrst...

Ég er með þetta lag á fucking heilanum.....Nennir einhver að lesa þetta....  Ég er eitthvað svo tóm þegar ég sest fyrir framan tölvuna.... Þið sem mættuð ekki á Gaukinn á föstudaginn misstuð af mögnuðum tónleikum hjá Jet Black Joe.... Það var crazy smazy á barnum frá 1 - 4.30... Belað mikið af fólki.... Önnur táin var fyllt á fimmtudaginn síðasta hjá henni Önnu Karen á Mílanó... Smá staffadjamm þar.. þegar það var búið hélt ég bara smá partý sjálf.... Sleppti því nú að fara á hina umtöluðu árshátíð Gauksins sem var haldin mánudaginn 10. apríl.... Þar var drukkið straight í 21 tíma en samt voru fullir balar af brennivíni sem komu til baka... Bara það segir mér að það hafi verið mikið af búsi og mikil skemmtun þar á bæ....Ég var sú eina sem var ekki þunn í vinnunni þriðjudeginum eftir það, kvölin magnaðist mikið hjá samstarfsfélugum þegar dauðrokksveitir kvöldsins byrjuðu að spila á neðri hæð Gauksins.....

Annars sit ég bara hérna í höfninni í faðmi fjölskyldunnar í páskafríi... Langði á ball í gær en sat heldur bara með rauðvín í hönd orðin frekar kend með Milenu vinkonu...

To jest moje kochanie Milena....


Posted at 08:33 pm by Gudda
Tjáðu sig.(1)  

 
Sunday, March 26, 2006
......

Á ég ekki að notfæra mér tækifærið á meðan ég sit hérna fyrir framan tölvuna hjá Ömmu gömlu... Var að vinna á Gauknum á föstudaginn þar voru brilljant tónleikar með Jeff Who & Jan Mayen. Þvílík snilld. Var á barnum og það sem fólk getur bullað og nöldrað. En ég skildi fólkið vel þar að ég get verið total bitch öfurölvi á barnum. Nokkrir sem vildu bjóða mér í partý eftir vinnu. Partý kl. 07.00, edrú ??? Ehh... fæ ég morgunmat??

En ég og Anna Magga skroltum uppí Bsí eftir vinnu og fengum okkur eitthvað í gogginn... Þá hringdi amma mín og sagði mér það að afi minn væri látinn.. Var búin að vera mikið veikur en þetta er samt alltaf erfitt.... Anna sæta, góða stelpa gaf mér frí á laugardagskveldið og keyrði mig beint til ömmu klukkan sjö um morguninn og hérna hef ég bara verið í Heiðargerði hjá henni ömmu minni... Öll fjölskyldan staðið saman....  En þetta var allt fyrir bestu þar sem að hans tími var komin... En þá er að skrifa minningargrein. Það kemur svo margt í huga... góða minningar.... En nóg með það...

 

 

 


Posted at 10:41 pm by Gudda
Tjáðu sig.(3)  

 
Sunday, March 05, 2006
Jæja pæja....

Jæja ætli mar verði nú ekki eitthvað að láta heyra í sér... Það gengur ekkert smá vel í Reykjavíkinni... Nokkur djömm að baki og nokkrir dagar af þynku liðnir.... Við Linda fengum Íbúð á Rauðarárstígnum.... Ekkert taxa helvíti á djammið... Sæla.... Vinnan á Café Mílanó gengur eins og í sögu... Frábært fólk sem ég er að vinna með... Fór á djammið með 3 Mílanó gellum einmitt núna um helgina og vaknaði ég í fóstustellingunni uppí sófa með veskið og í jakkanum mínum um morguninn.... Linda Rós henti á mig teppi svo mér hefði ekki orðið kalt.....

En ég er farin að vinna á Gauknum líka..... Smá aukapeningur.... Er á vöktum með henni Önnu Möggu minni.... Sæta stelpa.... Amerikas next top model gellan var eitthvað að dj'ast á laugardaginn með líka þessa ömurlegu tónlist og karíókí allt kveldið.... Einhver hópur af könum komu sko alla leið frá new York til þess að karíókíast á Íslandi.... Vei vei vei... Heyrði eina gellu segja að þetta yrði sko brjálað reif partý seinna um kveldið.... aha.... reif partý my ass....

Já svo svona fyrir þá sem vissu það ekki þá er ég í kveldskóla og gengur það helv vel.... auddah.... he he jæja pæja nenni þessu ekki .... síja...


Posted at 09:26 pm by Gudda
Tjáðu sig.(3)  

 
Wednesday, January 25, 2006
veii...
Þá var síðasti dagurinn í slorinu í gær vei vei vei.... Og fyrsti dagurinn á Kaffi Mílanó í dag... Vonandi gengur það bara vel....

Posted at 10:38 am by Gudda
Tjáðu sig.(4)  

 
Saturday, January 14, 2006
Ekkert er fegura en vorkvöld í reykjavík....

Ohh.... fólk mig langar svo að fara djamma ég er að deyja.... Ég sagðist ekki ætla að djamma síðustu helgi en ég fór í rvk til Óttars og við skelltum okkur á Ara og hittum þar Óla Hlyn & Hemma.... Þeir fóru á "Ertu nátturulaus" tónleikana.... EKKI BUÐU ÞEIR OKKUR MEÐ..... Tittar.... Við Óttar sátum bara heima grátandi.... búhú.... En frá Ara i Ögri var skellt sér á Hressó og hitti ég allt heila klappið.... Linda litla var þá á djamminu með vinkonu sinni og sú vinkona komst ekki inná Hressó þannig að ég fékk að hafa hana hjá mér.... En Nóalingur og Rauðskalli Brennivínsson (Addó) voru þar á djammeríi!!!..... Skemmilegt kveld og myndir --Nýja myndir--

En i aften skal ég sitja heima hjá mér.... Peningarleysi og bólur í fési gerir það að verkum að ég nenni ekki útúr húsi.... Í gær sátum við Ingvar Júl, Ester, Birgitta og Sonja við bjórdrykkju í tilefni þess að Ester sæta er að flytja til Köben og vinna og skemmta sér... Taka sér frí í Háskólanum og lifa a litle.... gaman það.... Bauð mér með en ég neitaði.... AFHVERJU?? Því ég er komin með vinnu í rvk.... vííí.... Ekkert smá ánægð... Er s.s að fara vinna á Kaffi Milanó eftir eina og hálfa viku.... Búin að segja upp í fisknum... Skráði mig einnig í kvöldskóla og það var ekkert smá gaman hjá mér á fimmtudaginn þegar ég Guðný Jónsdóttir fór uppí Iðnskóla og mætti þar í Dönsku... Ekkert lítið stressuð eftir 6 ára hlé en þetta var ótrúlega gaman.... Ætlaði  bara að taka þessu rólega og fara bara í eitt fag... En sé eftir því að hafa ekki skráð mig í fleiri.... Gaman gaman.... Gudda s.s að flytja í rvk... Ætla bara að reyna vera hjá Árna bróðir ... Ætli ég þurfi ekki að þrífa íbúðina hans hátt og lágt og elda á hverju kveldi þangað til ég finn mér verustað því Linda litla er ekki alveg komin með vinnu....

En ef þið vitið um íbúð fyrir okkur með væga leigu þá endilega hafa samband....

Ég keypti mér síma í gær K750i geðveikur sími skal ég ykkur segja.....

En Stera mín ég á nú eftir að sakna þín engill....


Posted at 09:35 pm by Gudda
Tjáðu Þig.  

 
Saturday, January 07, 2006
you look so fine that i really wanna make you mine...

Ég er búnað sitja fyrir framan sjónvarpið síðan bara í gær bara og líður vel.... Engin vinna um helgina.... Ekkert djamm í gær..... Á mar að djamma eitthvað í kvöld ?? Hmm.... Ég veit ekki.... Smá pæling með að bjóða bara Lindu litlu í pottinn og fá sér smá í glas eða bara sitja áfram fyrir framan sjónvarpið.... ??

En vallavega þá finn ég ekki ennþá símann minn en ég opnaði bara gamla númerið mitt og fékk gamlann síma frá pabba.... Minni kostnaður ef ég týni honum... Er nú samt að pæla í að kaupa mér annan síma.... Sony Ericsson held ég að verði fyrir valinu... Læt ekki bjóða mér Nokia viðbjóð.... Er með einn slíkan núna og það er drasl drasl drasl og aftur drasl.... En ég er ekki með nein númer þannig að viltu gera svo vel að senda mér númerið þitt einn tveir og tíu....´

Mig langar að kynna til blogheimsins nýjan meðlim en það er nú ekki lengi verið að búa til eins og eitt stykki síðu fyrir dömuna... Ég held þú gætir verið blindur, heyrnalaus og hreyfihamlaður og gert síðu hjá blog.central.is.... En hérna er hún Linda litla.... En hún á nú eftir að blogga eitthvað litla tussan mín....


Posted at 05:45 pm by Gudda
Tjáðu sig.(3)  

 
Monday, January 02, 2006
Way the by....

Týndi ég helvítis símanum mínum.... Held að þetta sé í þriðja skiptið sem ég týni síma....var meiraðsegja edrú Belive it or not.... Er s.s. símalaus núna.... veii... Ég á bráðum eftir að týna vitinu....


Posted at 02:03 pm by Gudda
Tjáðu sig.(4)  

Gleðilegt nýtt ár elskurnar.... Takk fyrir það gamla....

Árið er búið að vera frábært og kvaddi ég það og heilsaði því nýja með ótrúlega skemmtilegu djammi, skemmti mér dúndur vel. Byrjaði á því að borða hjá Hadda og Stínu. Brenna.... Sem var snilld því það var svo gott veður, skutum rakettunum og Linda litla hljóp alltaf útí horn við hverja bombu.... nei.... Lindbuffið og ég brunuðum svo í bæinn og gufan ég gleymdi miðunum á Nasa í Þorló en komnar uppá Litlu Kaffistofu... Snéri bara við og vorum við Linda komar í rvk um 2 leytið....

Partý hjá Nóa & Óskari. Stórglæsilegt lið þar...  Loksins þegar ég náði í gegn hjá Hreyfli þá var bíllinn komin eftir korter ég veit ekki hvað fólk er að röfla varðandi að bíða eftir taxa.... Nasa + Sálin = Snilld.... Vá hvað þetta er helmingi skárra en að hanga á slysó eða vera emjast hérna heima úr veikindum eins og síðasliðin áramót...  Vallavega spiluðu þeir í Sálinni nú stutt....  Eða komum við kannski of seint?? Ég held þeir hafi verið búnir að hnulla öllum út um 5 leytið...Hittum þar fullt af liði.  Annars man ég lítið eftir því....  Pravda.... Já PRAVDA var næsti staður.... Dönsuðum þar af okkur skóna blekaðar og skemmtilegar.... En í dag er ég að þjást fyrir þetta og er ég að kafna úr þynku.... Mig verkjar um allan líkama.... Veit ei ástæðuna en ég hef ekki getað sofnað....

Hékk nú fyrir framan hurðina hjá Nóa & Óskari í um það bil klukkutíma.... Dinglaði bjöllunni örrugglega fucking 300x... Ekki rankaði fólkið við sér einu sinni...Ég komst allavega inn á gang og þar reyndi ég að banka... Endaði bara með því að ég bankaði á einhverja íbúðina þarna og reddaði mér síma hjá fólki  og þar var mér bjargað frá því að hanga á ganginum...

Ég tók náttlega myndir.... --MYNDIR--


Posted at 12:52 am by Gudda
Tjáðu sig.(2)  

 
Friday, December 30, 2005
Nýjársloforð....

Svabbi vinur er æði og góður penni og ég las þetta hjá drengnum um daginn, heillaðist og fannst þetta viðeigandi við mig. Fannst smá kjánalegt að setja þetta inná mína síðu en þetta er eins og talað útúr mínu hjarta og ég fékk leyfi til að posta þetta....

Ég vildi óska...
...Að ég gæti verið aðeins kaldlyndari og grimmari, gefið svolítið skít í það hvernig öðrum líður og hvaða áhrif mínar ákvarðanir hafa á aðra. Það myndi gera líf mitt ótrúlega mikið auðveldara.

...Að ég hefði það í mér að vera stundum dálítið montinn og ánægður með sjálfan mig. Að ég gæti leyft sjálfum mér að vera hamingjusamur og kátur. Undanfarið hef ég verið að kveikja á því að það virðist sem það sé harðvírað í mig að berja sjálfan mig niður í hvert skipti sem mér gengur vel eða eitthvað gott er að gerast. Þessu þarf að vinna í... Hinir hógværu og lítillátu munu ekki erfa jörðina... Synir hinna gráðugu munu erfa jörðina.

...Að ég hefði kjark til að segja Nei eða Stopp við fólk stöku sinnum.

...Að ég væri ekki alltaf að biðjast afsökunar á tilfinningum mínum, sársauka, draumum og þörfum. Að ég væri ákveðnari í samskiptum við fólk og skýr á mínum kröfum.

...Að ég þorði meiru, gerði meira, drifi lengra... Ég veit að ég get svo margt, en ég geri það ekki... Mig langar að gera meira.

...Að ég væri betri pabbi, hefði meiri orku til að gefa dóttur minni þá hvatningu og aðhald sem hún þarf. (Gudda getur ekki orðið pabbi)

...Að heimurinn væri bara aðeins sanngjarnari við okkur öll... Djöfull myndu margir fá á baukinn ef svo væri... Djöfull veit ég um marga sem eiga skilið eld og brennistein fyrir það sem þeir hafa gert öðrum. Og djöfull veit ég um marga sem mætti alveg hætta að rigna þessum sama eldi og brennisteini yfir...(So true)

Ég get lagað alla þessa hluti nema einn.
Ég get bara breytt mér, breytt því hvernig ég umgengst heiminn og þá sem í honum búa.
Kannski það muni gera allavega smá dæld í heiminn eins og hann er...

Ég held að það verði nýársheitið mitt í ár.
Ég ætla að verða sterkari persóna, taka á mínum innri djöflum af sömu hörku og þeir eru búnir að vera að taka á mér undanfarin ár. Baráttan er þegar hafin og þeir munu fara halloka. Ég mun rísa upp úr svaðinu mínu og blómstra, þótt seint sé. Það dugar ekkert að óska sér. Maður verður að teygja sig eftir því sem maður vill. Og eina leiðin er að taka sjálfan sig í gegn.

Bestu Kveðjur,
Svavar

Ég held ég geri það sama..... Takk Svabbi minn..... Big Smile


Posted at 01:39 am by Gudda
Tjáðu Þig.  

Next Page




eXTReMe Tracker