Dró Lindu Rós með mér í labb í gær og það var "jaaaa... Já já...." En hressleikinn eftir labbið í gær hefur haft áhrif og var kellan meira en til í dag, en áðan var bandbrjálað fucking veður og við fórum út að labba djö við vorum eillega foknar til helvítis en ef við erum ekki harðar Íslenskar skjátur þá veit ég ekki hvað....
Posted at 08:01 pm by Gudda
Permalink
Bráðum koma blessuð Jólin...
Nei reyndar eru þau búin... Hátíð Ljós og friðar og er ég bara búin að slappa rækilega af... Éta á mig gat... Þar á meðal sætindi og ég held ég sé farin bara út að labba með Gutta á morgun eftir vinnu... Já vinna klukkan hálf sjö í fyrramálið.... Fögnuður... vei vei vei.... Ég er mjög sátt með Jólin og litlu jólasveinana í fjölskyldunni minni þar sem að ég fékk hágæa digital myndavél í Jólagjöf Sony 7,2 pixla... Ég held þau hafi fattað að ég hef áhuga á myndatöku... Hmm... hvernig ætli þeim hafi dottið það í hug???..... Vallavega fékk ég líka Deftones disk með öllum myndböndum þeirra og lögum sem hafa ekki verið gefin út... Accoustic útgáfur og fleira aukaefni frá tónleikum... úff Chino Moreno er bilað flottur smá chubbý en skiptir ekki skít mar kemur mér til......
... Þvílík snilld... Diskurinn verður ekki tekin úr spilaranum á næstunni.... Enda eitthvað sem ég bað um og var það Linda litla sem gaf mér gripinn.... Hún vissi ekki hvort þetta væri hljómsveit eða samband heyrnalausra...
......Svo fékk ég fullt en nenni nú ekki að vera með gjafalista... ´
Fagnaði svo hátíðunum með öðrum máta og skellti mér í borg óttans.... Þar sem að í gær var startgjald taxa 650 krónur og klúbbar bæjarins lokaðir... En ég skellti mér til Ester og var alveg game í það að vera bara heima og drekka rauðvín með kellu... En það var líka plan að skella sér á lífið ef eitthvað yrði opið... Fréttist að Dillon væri opið... EN bæði 1818 (Símaskrá) og Taxabílstjórinn sögðu að allir staðir væru lokaðir... En fyrir þessa vitund var skellt sér í partý til Óskars & Nóa og var það bara fín skemmtun.... Ester fór bara heim lúin og þreytt af jólastandi... En ég dokaði við þar sem að Linda litla harkaði af sér og keyrði í Reykjavíkina.... Dugleg stelpa....
Tók hérna nokkrar myndir og eru þær hérna.... --MYNDIR--

Posted at 11:36 pm by Gudda
Permalink
Jæja krakkar mínir þá eru nú komin Jólin... Ég er komin í Jóladressið og svaka sæt og fín og hrein á bakvið eyrun.... Hí hí hí.... En ég hlakka mest til að fá humarsúpu alla mamma.... Og svo nátturulega hamborgarahrygginn mar..... En gaman gaman Jólin spólin....
Búin að keyra út öll kort og pakka.... Sumir sem héldu að ég væri eitthvað að gantast með að gefa þeim Jólapakka en ég bjóst nú ekki við miklu í staðin... Það er betra að gefa en þyggja.... mjahaha....
Mig langar bara að óska öllum gleðilegra Jóla og hafið það yndislega kósý um jólin.

Posted at 05:20 pm by Gudda
Permalink
Þema kvöldsins: Brennivínsdauði...
Jólahlaðborð Jólahlaðborð Jólahlaðborð.... Maður á ekki að fara á Jólahlaðborð þunnur krakkar mínir það skal ég ykkur segja...
En ég fór í rvk á föstudaginn... Ætlaði bara að hafa Lindu hjá mér, fara í pottinn og drekka smá bjór.... En svo vissi ég af Hattadögum hjá Addó & Nóa... En ætlaði bara að dissa það vegna Jólahlaðborðsins á Hótel Geysi.... En ég lét plata mig útí einhverja vitleysu sem varð svo bara helvíti skemmtileg.... Keyrði í rvk og einmitt ÆTLAÐI bara að vera edrú.... Það er svo margt sem ég ÆTLA að gera... En ég er farin að halda að Addó og Nóa finnist ég eitthvað leiðinleg þegar ég er edrú..
En ég skilaði inn bíllyklunum og fékk mér í glas... Þarna var nú dræm þáttaka í að bera hatt en það var stórglæsilegur bikar í verðlaun fyrir magnaðasta hattinn.... Ég á nú einhverstaðar nokkra hatta úr eyjaferðum mínum.... En þarna var fjörugt fólk þar á meðal stúlka sem ég kallaði alltaf Freyju en heitir víst Fjóla og gaur sem heitir Alli en ég kallaði hann alltaf Njóla... Mjahaha....
Þaðan var brunað á Töxum niðrí bæ... Valið var um 3-4 taxa.... Við völdum bara taxann með feitasta gaurnum sem Nói baust svo til að borga í blíðu... En bílstjórinn neitaði pent.. Strundsuðum inná Gauk. Hitti Önnu Möggu að vanda en hún var bizzí as ever á barnum, enganvegin hægt að spjalla við kellu...
Brain Police var að byrja að spila er við komum á svæðið... Ég dró Lindu niður þar sem að við vorum uppi að dilla rassinum við fmtónlist... Fyrst nöldraði Linda um að fara upp en ég þá dró hana örlítið nær sviði þar sem að Biggi sat í rólegheitunum með bjór í hönd... Linda Rós var ekki lengi að snúast hugar og digga sig þegar hún náði að einbeita sér örlítið og ég held að kellan hafi blotnað niður í tær þegar hún fékk vangastroku frá Jenna í Brain Police...
Svo benti Biggi mér á að Gítarleikarinn væri Búi eða Gunni Gír og fulla ég sendi sms til Nóa sem var svo "ég er bara að digga mig hérna niðri að horfa á Gunna Gír í Zúper brillera". GUNNA GÍR Í ZÚPER????? hmm.... ég held ég sé búin að hlusta of mikið á fm.... Kíkt var inná Glaumbar... Eitthvað dansí dans og Linda Rós að lemja mig.... Já krakkar mínir svona eru þá vinir mans.... Nei ég var pínku full og ásakaði Lindu Rós um glæp sem hún framdi ekki.... Gellan var einnig full og tók þessu frekar illa.... Ég hélt fast í kellu því hún vildi láta sig hverfa en sló mig svo c.a. 5 x í andlitið.... Litla t*s*a.... En allt í góðu er við tókum kvennaklóettsferð....Nennir einhver að lesa þetta.... ????
En ég sofnaði ekki fyrr en hálf átta og vaknaði um hálf ellefu um morguninn... Smáralind og svo Þorlákshöfn.... Linda Rós í smink og ég að sofa... En náði því bara ekki... Hausverkur og leiðindi.... Ég varð rétt svo reddí þegar rútan lagði úr höfn.... Ég nennti þessu enganvegin... Já sumir voru fjörugri en aðrir í rútunni en ég held að þeim hafi fundist rútuferðin of löng því sumir lögðu sig.... Mikið djöfull var maturinn góður maður.... ohh... Sumir fengu nú ekki að njóta matarins þar sem að brennivínsdauði var þema kvöldsins...EN ég varð nú lítið drukkin aðalega bara þreytt... með hausverk.... Og orðin leið því það voru engin skemmtiathriði á milli matar og dansiball.... Já 3 tímar í bið.... En ég dansaði fullt þegar ballið loxins byrjaði og þar var Karma að spila og spilaði bara þessa líka ágætislög...En svo sast ég bara niður og svona hálfdottaði.... Og ég sem ætlaði svo þokkalega að djamma á þessu Jólahlaðborði... Já og ég hafði keypt mér 17.000 krónu háhæla stígvél sem gerðu mig halta... Svo lenti ég í einhverjum ágreining við ákveðinn mann sem skiptir ekki máli... EN ég var já næstum laminn þarna líka en ég átti nú orsökin á því.... En jámm... Ég ætlaði í rvk eftir Jólahlaðborð en sofnaði bara....
Ég er búin að setja inn nokkrar myndir frá Jólahlaðborðinu --MYNDIR--
En hérna er Biggi í Homer nærum... 

Posted at 09:57 pm by Gudda
Permalink
Djöfull er ég viðbjóðslega motherfucking vængefnislega pirruð á þessu helvítis Digital Ísland kjaftæði.... Sit hérna veik heima og ekkert sjónvarp... Bara 15% 57% drullist til þess að hafa þetta í lagi skítalabbar.... pirrrrrrr...... Guði sé lof að mamma og pabbi eru dugleg við það að kaupa dvd.... Helvítis kjaftæði...
Posted at 01:43 pm by Gudda
Permalink
Sjáiði stóra frænda með litlu sætu stelpuna sína... 
jámm 10 Desember eignuðust þau Lonni Björg Og Baldur Sævarsson litla sæta stúlkukind..... TIL HAMINGJU.... 

Posted at 01:26 am by Gudda
Permalink
Jæja það er búið að klukka mig klikka mig og kítla mig og whatever.... En ég nenni því enganvegin .... Alveg eins og ég þoli ekki svona keðjupóst.... En þetta er eitthvað sem ég þarf ekki að eyða mikilli orku í.... Sko ef engin tekur þátt þá veit ég að ég á enga vini.... !!! Og mun ég fleygja mér framaf bryggjunni hérna í Þorlákshöfn og það er ekki skemmtilegur dauðdagi.... Ég held meiraðsegja að ég myndi ekki drepast....
Comentaðu nafninu þínu og..
1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér eikkað sem meikar bara sens fyrir mig og þig
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
7. Ef þú lest þetta þá verðuru að setja þetta á bloggið þitt.. You MUST
En þetta sagði hún Anna Magga mín um mig....
Guðný..
1. Þú ert æði!! !! !! gleymi ekki gömlu góðu partýunum sem við héldum saman... strumpaleikurinn...hahaha þar sem maður þurfti að taka einn sopa í hvert skipti sem sagt var strumpur...já skrautlegt!
2. Hmm...bara diskurinn Kafbátamúsík með Ensími í heild sinni..þegar við gerðum ekki annað en að rúnta og hlusta á hann!! Man gaman gaman..og líka Bang Gang...mjá mjá mjá mjá..hahaha
3. Hvítur golf..Reykjavík..steinn...dekk... vesen!!
4. Veistu ég man þegar við kynntumst fyrst! Því við kynntumst í sundi..ég var notla sundfrík!!! Allltaf í sundi..allan daginn..mitt annað heimili..en við hittumst í heita pottinum..haha já ég man það..og við vorum alveg pínulitlar og ungar.. svo fórum við heim að leika..og þá fór mamma að spyrja hverra manna þú værir og þá kom í ljós að þú varst frænka mín! Vá vorum við glaðar!!
5. Tígrísdýr!!
6. Hvenær á að flytja aftur í bæinn?
Ha ha ha ha ha ha ha ha ha ég var algerlega búin að gleyma þessu með golfin og steininn.... Svo kom Árni bróðir að skipta um dekkið og spurði mig hvort ég hafi verið í toffæru útaf gömlu grasi sem var undir bílnum.... Ha ha ha ha Toffæra.... Á Golf '92 ???? Ég er að vinna í því að flytja í Reykjavíkina.... Ég á ennþá Kafbátamúsik sko... Hlusta á hann eiginlega á hverjum degi.... Lag númer 6 er best.... :)
Posted at 07:53 pm by Gudda
Permalink
Fór í klippingu síðasta fimmtudag.... Táraðist meiraðsegja því hún klippti svo stutt að aftan og framan og bla bla bla.....Bað um smá topp, svona til hliðanna... Þá fékk Arna klippikellan mín kast og tautaði alltaf "treystu mér , treystu mér"... Búin að fara til kellu síðan ég var 15 ára.... Og svona endaði ég....
p.s Það er einhver misskilingur um að ég skammist mín eitthvað fyrir dateið mitt síðasta föstudag því ég nafngreini hann ekki en mér fannst það bara ekki koma neinum við.... En hann heitir Óli Hlynur og er gamall Þorlákshafnarbúi.... :) Skammast mín enganvegin.....sko.....
Posted at 11:57 pm by Gudda
Permalink
Mikið djö er Jólajógúrtið frá ms... VIÐBJÓÐSLEGT....
Vallavega þá eru nú að koma Jól krakkar mínir og Jólahlaðborð á næstunni hjá Frostfisk.... Hmm... 60% Pólverjar, 20% Fillipseyingar & Tælendingar og svo skitin 20% Íslendingar.... Fjör.... !!!! En ég mun hafa Bigga & Lindu Rós þannig að þetta verður hörkudjamm.... Svo er bara að plata einhvern til þess að keyra mann í rvk... Því ég býst við því að rútan fari heim frá Hótel Geysi um 2 leytið og ekki nenni ég að fara að sofa þá....
En ég sé það að í framtíðinni á mínu heimili skal vera heitur pottur þetta er alveg fucking brilliant.... Er s.s. búin að vera ein heima núna síðan á Miðvikudag og pottinum nauðgað....
En helgin er búin að vera frábær... Fór á date á Föstudaginn með ónafngreindum aðila. Út að borða og í bíó... Bara læti í gangi... Já við fórum á The Exorcism of Emily Rose og var sú mynd SNILLD.... ahh.... nú þarf ég bara að fara á SAW 2 ég er veik fyrir hryllingsmyndum.... En ég þarf alltaf að halda fyrir eyrun á mér þegar það koma einhver scary athryði.... Ég var eins og hálviti á dateinu, henda frá mér poppinu og halda fyrir eyrun.... mjahaha.... Eftir bíó var brunað í Þorlákshöfn og Linda Rós joinaði okkur og við skelltum okkur í pottinn..... auðvitað... Þar mixaði dateið uppá snilldar drykk fyrir okkur Lindu Rós og djöfull var ég þunn af þessu daginn eftir fannst eins og augnlokin á mér væru 300 tonn.... En ég pjúkaði ekki og ég varð helvíti full.... Allaveg svo full að ég man ekki eftir helmingnum af kvöldinu.... Þannig að White Russian er fyrir mig.... En samverustund með Árna bróðir á Laugardagskveldið.... Bæði þunn og sælleg....
Nú er bara að bíða eftir komu gömlu hjónanna frá Londin með fullt af shitti handa mér.... jehaaa.... Nýjir Puma skór.... army style....
Svo er alveg merkilega gaman þegar fólk er að hringja í mig á næturnar ég man ekki shitt eftir því.... Það væri hægt að fá mig til að ljóstra upp öllum mínum leyndarmálum í svefni.... T.d. Biggi hringdi víst í mig á aðfaranótt Sunnudags.... Ekki mundi ég eftir því og veit ég ei hvað ég hef verið að bulla....
Posted at 02:29 am by Gudda
Permalink
Að djamma edrú eða að djamma full hmm... Sko síðustu helgi fór ég á ball í Þjórsárveri með Óttar & Hemma og var þá að keyra AUÐVITAÐ en það var fjör... Ég dansaði ekki, fannst fólk vera alveg voðalega skrítið eitthvað og alltaf var verið að spyrja mig hvort ég væri í fýlu... En halló ég var ekkert í fýlu ég var bara ekki blindfull eins og allir aðilarnir sem voru að spyrja mig... He he... Linda Rós var nett á því... Drakk sig svo fulla að hún sofnaði í stól við hliðiná mér þannig að litli bróðir hans Óttars Hjalti ákvað að gá hvort hún vaknaði við viðreynslu... Það tókst með smá spjalli við brjóstin á henni og stunur í eyru... En það var nú vesen á honum Hjalta... Eða á Selfyssingum sem voru eitthvað að bögga hann... Já slagsmál... Meira vesenið... Selfyssingar verða nú ekkert lítið brjálaðir þegar þeir finna lyktina af slagsmálum en það þurfti að henda bræðrunum Axel & Hjalta útum bakdyrnar því gangurinn var fullur af brjáluðum Selfyssingum... Svo var það 45 mín bið í pylsuvagninum... Jesús... Ágætisdjamm....
Aftur á móti núna á Föstudaginn var ég blendfull... Fór í Partý til Óttars & Hemma þar var Fjöldi fólks en lítil íbúð.... Soldið skrítið... Leið eins og lítilli sardínu í dós... No affence.... En samt frábært partý....Það var frábært að hitta Ingunn & Jóhönnu. Hitti svo nýju kelluna hans Óttars sem heitir Klara og er sú stelpa sæt og hress... Skemmti mér mjög vel með henni allt kveldið... Og auðvitað hann Ingvar Júll... Hann er alltaf hress... Úff svo var Tequila í boðinu... Skaut ég 3 stykkjum í mig og alltaf veit ég eftirá að ég á ekki að drekka tequila nema að búast við smá svefn og pínku ælu...
Heimsóttum svo Ari Ögra... Lítið um skemmtilegt lið þar nema Linda Rós á djamminu með vinkonum sínum... Svo labbað inná Sólon... veiii... Ágætlega skemmtilegt nema ég man voðalega lítið en ég átti þar góða stund inná karlaklósetti ... Það er fínt að vera þar...Mar fær þó frið... Annað en inná kvennaklósetti... Brjálaðar kellur sem vilja pissa...
Gaukurinn var auðvitað heimsóttur og hitti ég þar Bigga hressann að vinna og Önnu Möggu sætu frænku í pool... Hún dró mig með sér á Glaumbar í smá dans... En ég bara fór yfir á Gaukinn aftur og sannfærði liðið á Hlölla og heimferð... Var það bara kósí stund með Hölla & Tv heima hjá Óttari og Hemma.... Vaknaði svo þar og skellti mér í sturtu það er nú ekki meira frásögufærandi en það að ég vissi enganvegin hvernig ég átti að snúa mér í þessu klósetti... Alveg minnsta baðherbergi sem ég hef þurrkað mér í....
En í gær var fólk að djamma í Ráðhúskaffi hér í Þorlákshöfn að syngja karókí og hafði ég planað að kíkja en ég var bara enganvegin að nenna því þar sem að þetta var söngvakeppni og var breytt í bara karókíkeppni vegna lítillar þáttöku... Nenni því ekki... Þannig að ég sit bara hérna heima að gera jólakort sem er alveg jafn gott... Er líka þunn....
En ég er búin að setja einhverjar myndir inn.... Sumarbústaðurinn hjá Addó & Nóa, Ballið í Þjórsárveri & svo djammið núna í reykjavík...
--MYNDIR--
Posted at 01:49 am by Gudda
Permalink